Fara í efni

Umsóknarferlið

Hér að neðan er hægt að sjá hvernig úthlutunarferlið hjá Skálabrún virkar

Umsókn

Sótt er um lausar íbúðir á heimasíðu okkar. Skila þarf inn lánshæfismati frá Credit Info og sakavottorði svo að umsókn teljist gild.*
Allir umsækjendur fá skriflegt svar þegar umsóknin hefur verið meðhöndluð

Úthlutun

Sá sem fær eign úthlutað fær tölvupóst þess efnis og boð um að skoða eign.

Staðfesting

Eftir skoðun á íbúð er greitt staðfestingar- og umsýslugjald, til að staðfesta íbúðina. Sjá verðskrá hér.

Trygging

Umsækjandi útvegar tryggingu sem nemur 3 mánaða leigu í formi bankaábyrgðar, ábyrgðar frá Leiguskjól eða að tryggingarupphæð er lögð inn á reikning Skálabrúnar.

Undirskrift

Þegar trygging liggur fyrir er hægt að ganga frá undirritun leigusamnings rafrænt. Leigusamningar eru undirritaðir rafrænt. Óskir þú eftir að sækja um húsaleigubætur, er sótt um það rafrænt á heimasíðu HMS.

Afhending

Eign er afhent í samræmi við leigusamning og um leið er gengið frá innskoðunarskýrslu. Framvísa þarf skilríkjum við innskoðun. Þetta er gert til að skjalfesta ástand eignar þegar þú tekur við henni.

Leigusamningar eru undirritaðir rafrænt. Ætlir þú þér að sækja um húsaleigubætur, gerir þú það rafrænt á heimasíðu HMS.

Til hamingju með nýja heimilið!

Þú flytur inn og býrð þér nýtt heimili. Við vonum að þér líði vel hjá okkur og leggjum okkur fram við að búa til vinaleg heimili.

*Skálabrún áskilur sér rétt til að synja umsókn á grundvelli lánshæfismats eða sakaskrár umsækjanda.