Um okkur

Skálabrún var stofnað árið 2024 með kaupum á 119 íbúðum á Akureyri af Íveru

Skálabrún er 100% dótturfélag KEA og aðalstarfsemi þess er útleiga íbúðarhúsnæðis á almennum markaði.  Félagið var stofnað í kringum kaup á 119 íbúðum Íveru á Akureyri.  Skálabrún er stærsta félag þessarar tegundar á Akureyri og markmiðið er að byggja félagið enn frekar upp yfir lengri tíma.  Hjá Skálabrún eiga leigutakar að geta gengið að leiguöryggi en leigan tekur breytingum yfir tíma eftir þróun markaðsverðs leigu og í samræmi við ákvæði húsaleigulaga.